Legal notice
Ábyrgðarskilmálar
Ábyrgð seljanda er í samræmi við lög þar að lútandi. Ábyrgð á vörum sem seldar eru til einstaklinga er 2 ár en vörur sem seldar eru til lögaðila 1 ár.
Nauðsynlegt er að framvísa gögnum fyrir vörukaupum til að sannreyna ábyrgð á vöru. Ábyrgð nær ekki til eðlilegs slits eða notkunar á vöru. Linsur.is bera ekki ábyrgð á tjóni sem kann að verða við flutning vöru hjá þriðja aðila.
Öryggi
Linsur.is varðveitir ekki kreditkortanúmer sem gefin eru upp við kaup í netverslun.
Persónuvernd
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Linsur.is deilir ekki persónugreinanlegum gögnum til þriðja aðila
Vefurinn okkar notast við Google Analytics og safnar það tól ópersónugreinanlegum gögnum s.s. hvaðan heimsóknin kemur, hversu lengi vefurinn var skoðaður og hvaða efni er mest skoðað. Þessi gögn eru nýtt til að greina heimsóknir á vefinn og gera upplifun notenda af honum enn betri.
Kvartanir
Sé vara gölluð eða viðskiptavinur einhverra hluta vegna ekki ánægður með vöruna er hann hvattur til að hafa samband við starfsfólk okkar í síma 511-8800
Annað
Linsur.is áskilur sér rétt til að fella niður pöntun ef nauðsynlegt reynist undir einhverjum kringumstæðum, það gæti m.a. gerst vegna ranga verðupplýsinga í netverslun eða að vara er ekki lengur fáanleg hjá Linsum.is eða birgja. Viðskiptavinur er upplýstur um slíkt eins fljótt og hægt er.